Skip to product information
1 of 2

Ghost Vörur

Andlitsrúlla Rosenquarz (steinar)

Andlitsrúlla Rosenquarz (steinar)

Regular price 4.490 ISK
Regular price Sale price 4.490 ISK
Sale Uppselt
vsk innifalinn

Andlitsrúlla með Rosenquarz stein

Andlitsrúlla sem þessi hefur verið notuð í mörg hundruð ár og á uppruna sinn að rekja til Kína. 

Hún örvar sogæðakerfið og dregur þannig úr þrota, eykur blóðflæði og gefur húðinni fallegan ljóma. Rosenquarz steinninn er síðan sagður róa húðina. 

Við mælum með að geyma rúlluna í kæli, jafnvel í frystinum. Sérstaklega ef þú ert að vinna á baugum eða þrota í kringum augnsvæðið, þá er rosalega gott að taka hana úr frystinum á morgnanna og rúlla yfir það svæði. 

Hvernig á að nota hana? 

Byrjaðu á að hreinsa húðina og bera á hana þau krem sem þú notar vanalega. 

Andlitsrúllan er með tveimur endum. Notið stærri endann til þess að byrja að rúlla frá höku, upp kjálann og að hárlínunni. Gott er að miða við 8 skipti sitthvoru megin með léttum þrýsting. Farið næst yfir kinnar og enni og alltaf að rúlla upp að hárlínu. 

Síðan er það augnsvæðið en þá notar þú litla endann. Byrjaðu að rúlla frá augnkrók lárétt að hárlínu 8-10 undir hvert auga. Síðan lárétt yfir augabrúnir. 

Síðan er hægt að rúlla hálsinn og kjálkann. 

Eftir notkun skal skola hana og þrífa með mildri sápu. 

Notið kvölds og morgna. 




Skoða nánar