Skilmálar

1. Upplýsingar um seljanda

Ghost Network ehf.
Kt: 610721-1330
Lyngholar 32
Neðri Inngangur
210 Garðabær
Sími: 6960981
Netfang: ghostbox@draugasogur.com
VSK númer: 141946

VINSAMLEGAST ATH! GHOSTBOX.IS ER EINGÖNGU VEFVERSLUN.


1a. Höfundarréttur

Allt efni (texti, myndir, gagnvirkt efni og umbrot) © 2024 Ghost network ehf. og GhostBox, öll réttindi áskilin. Óheimilt er að endurselja vörur, breyta umbroti eða afrita vörur á nokkurn hátt nema með skriflegu leyfi frá Ghost Network ehf.

Allar vörur eru í eigu Ghost Network ehf og GhostBox. þ.m.t. hönnun, grafík, leiðbeiningar, reykelsi og aðrar vörur sem sýndar eru á síðunni.

© 2024 Ghost network

Brot á höfundarrétti er á við, varðar við lög.


2. Skiptiréttur/skilaréttur í vefverslun

• Skila- og skiptiréttur á vörum eru 14 dagar frá kaupum og verða vörur að vera í upprunalegu ástandi, og í órifnum/óopnuðum umbúðum.
• Kaupanda ber að tilkynna GhostBox ef um gallaða eða ónýta vöru sé um að ræða eins fljótt og auðið er.
• Skil á vörum fer fram að Lynghólum 32, Neðri inngangi 210 Garðabæ eftir samkomulagi.
• Skilareglur takmarka ekki lögbundna neytendavernd.

Lög um neytendakaup
Lög um þjónustukaup


3. Verslað í vefverslun

1. Veldu vöru og settu í körfu.
2. Veldu körfuna og fylltu út allar upplýsingar.
3. Veldu greiðslumáta.
4. Þegar greiðsluferli er lokið hefur þú kost á að fá annað hvort vöruna senda með pósti eða hægt er að sækja á tilgreindum tímum og skv. samkomulagi

3.a Skilaréttur í vefverslun

• Endurgreiðsla á vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða ranga, skemmda eða gallaða vöru.
(sjá reit 2)
• Ef til endurgreiðslu kemur er vöru almennt endurgreitt á sama hátt og hún var greidd þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkort eða niðurfellingu eða millifærslu.

Lög um neytendasamninga
Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu

3.b Upplýsingar og verð

• Vöruverð í vefverslun er í íslenskum krónum eða í bandaríksum dollara .

Vöruúrval, afslættir og tilboð geta verið mismunandi á milli vefverslunar og Patreon áskriftarsíðu Draugasögur Podcast.
• Verð, myndir og vörulýsingar á netinu og vörulista eru birtar með fyrirvara um villur.
• Vöruverð í vefverslun er tilgreint með virðisaukaskatti.
• Sendingarkostnaður innanlands fer eftir landshluta og eru vörur sendar með Dropp sem hefur afhendingarstaði um land allt.

Athugið að verð getur breyst án fyrirvara og er birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur.


4. Greiðslumöguleikar

GhostBox og Ghost Network ehf. bjóða upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

4.a Vefverslun

• Kredit- og debetkort: Viðskiptavini er vísað á örugga greiðslugátt Valitor þar sem allar kortaupplýsingar eru slegnar inn. Greiðslan skuldfærist strax af kortinu.

• Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.valitor.is/

Engar persónuupplýsingar eru geymdar á netþjónum GhostBox eða Ghost Network ehf. sem tengjast greiðslu pöntunar þinnar.


5. Ábyrgð

• Ef ábyrgð er á keyptri vöru gildir kvittun sem ábyrgðarskírteini vörunnar.
• Ef um ræðir sölu til fyrirtækis eða til atvinnustarfsemi er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu.
• Athugið að í sumum tilfellum eru einstaka vörur með lengri ábyrgðatíma en í þeim tilfellum er slíkt tekið fram.
• Kvörtun vegna vörugalla skal berast okkur um leið og gallans verður vart og fer hún þá í ferli hjá GhostBox.

Hægt er að tilkynna um galla með tölvupósti á draugasogur@draugasogur.com eða í síma 696-0981

Lög um neytendakaup
Lög um þjónustukaup


6. Ágreiningur

Reynt er að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Lokaúrræði er að fara með málið fyrir dómstóla og skal það gert í íslenskri lögsögu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.