Skip to product information
1 of 1

Ghost Vörur

Galdrakerti: TRANSFORMATION

Galdrakerti: TRANSFORMATION

Regular price 2.690 ISK
Regular price Sale price 2.690 ISK
Sale Uppselt
vsk innifalinn

Sem hjálpa þér að vinna á þeirri orku sem þú kýst.

Fjólublá kerti eru oft notuð í helgisiðum og athöfnum sem tengjast umbreytingu. Liturinn er tengdur djúpri hugleiðslu, andlegri dulspeki og þriðja auganu. Þau eru tákn um visku, innsæi og æðri meðvitund.

Kertin eru notuð í athöfnum til þess að hreinsa áruna, koma jafnvægi á tilfinningar, og til þess að minnast og heiðra þá látnu.

Þau eru fullkomin í hugleiðslu, þegar þriðja augað er opnað og við komumst í tengingu við okkar verndarengla og leiðbeinendur.

Í þessum pakka eru 10 fjólublá kerti sem eru 12,5 cm á hæð og 1 cm á breidd.

Hvernig nota ég galdra kerti?
Það er hægt að nota galdra kerti á allskonar hátt. Ein leið er að þú velur þann lit sem hentar þínum ásetningi, og vertu með skýran ásetning. Hvað er það sem þú vilt?

Áður en þú kveikir á því skaltu hreinsa það með sage. Sumir kjósa að setja smá olíu á kertið áður en kveikt er á því. Aðrir skrifa ásetning sinn á lítinn miða og setja hann svo undir kertið. Það sem skiptir höfuð máli er að vera í núvitund og með skýran ásetning. Þú biður um, eða laðar að þér það sem þú kýst. Síðan leyfir þú því að brenna.

Skoða nánar