Skip to product information
1 of 2

Ghost Vörur

7 Chakra Kristalla Kerti

7 Chakra Kristalla Kerti

Regular price 3.890 ISK
Regular price Sale price 3.890 ISK
Sale Uppselt
vsk innifalinn

Gefðu orkustöðvunum þínum athygli með þessu öfluga kristalla kerti..... 

Hér erum við með stórt kerti sem er skreytt með sjö kristöllum sem tákna orkustöðvar líkamans. Það ber djúpstæðan boðskap þar sem það hvetur okkur til þess að horfa inná við og finna fyrir frið og innri sátt. 

Kristallar eru oft notaðir til þess að lækna og vernda. Þeir eru fullkomnir í hugleiðslu og til þess að hjálpa þér að komast í samband við þína æðri vitund.  

Orkustöðvarnar 7:

1. Rótarstöðin 
2. Magastöðin 
3. Sólarplexus 
4. Hjartastöðin 
5. Hálsstöðin 
6. Ennisstöðin 
7. Höfuðstöðin 

Red Jasper (rauður fyrir rótarstöðina ): Hefur verið notaður í mörgþúsund ár fyrir vernd. Hann heldur okkur á jörðinni og ýtir neikvæðri orku frá sér. Hann passar uppá að við séum í góðu jafnvægi og hefur einnig verið notaður til þess að auka frjósemi. 

Carnelian (appelsínugulur fyrir magastöðina): Þessi steinn er hlýr og táknar lífskraft, styrk og hugrekki. Hann ýtir einnig undir sköpungargáfur og gleði.  

Citrine (gulur fyrir solarplexus): Tengist jákvæðni og bjartsýni. Hjálpar okkur að koma jafnvægi á sólarplexus og sjálfstraust.  

Emerald (grænn fyrir hjartastöðina): Hann opnar hjartastöðina og róar tilfinningar. Veitir innblástur, visku og hjálpar okkur með þolinmæði. Hann ýtir undir frið og sátt. 

Aquamarine (ljósblár fyrir hálsstöðina): Opnar flæði á milli hjarta og háls. Tengir okkur við okkar æðra sjálf.   

Lapis Lazuli (dökkblár fyrir ennisstöðina): Hjálpar okkur að sjá hlutina í réttu ljósi, fylgja innsæinu okkar og ýta frá okkur neikvæðri orku. 

Amethyrst (fjólublár fyrir höfuðstöðina): Örvar hugann, dýpkar tilfinningagreind og færir okkur ró. 

Ilmurinn af kertinu er orkugefandi og kallast Moon Beams.   

Eftir að kertið hefur brunnið niður getur þú átt kristallana.  

Kertið brennur í um 23 klst.
Stærð: 10,5 cm á breidd & 6 cm á hæð. 
Þyngd 0,64 kg.   

ath. litur kristalana getur verið misjafn, enda er enginn eins. 

Skoða nánar